Að vanda virðingu sína
er val sérhvers manns.
Velsæmis gæta og lögum lúta,
lát engan sér múta.
Rætnar tungur og rógburður,
rífa, níða og meiða.
Eiturgróurnar fáum eira,
ef andann og sálina ná að seiða
(KB)

Einelti og kynferðisleg áreitni

Í þínum sporum

Hér má sjá helstu birtingarmyndir eineltis og kynferðislegs áreitis meðal fullorðinna og barna

Birtingarmyndir eineltis meðal barna og helstu einkenni sem finna má hjá börnum sem eru þolendur annars vegar og gerendur hins vegar

 

Geymt en ekki gleymt
Fátt er eins skemmandi og einelti. Skaðsemi langvinns eineltis getur varað alla ævi. Brýnt er að halda umræðunni lifandi. Í starfi mínu hef ég séð slæmar afleiðingar langvinns eineltis bæði hjá börnum, unglingum og einnig fullorðnu fólki sem sumt hvert, voru þolendur sem börn.

Sjálfsmat barns sem hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum eða hunsun og fyrirlitningu annarra barna í langan tíma verður fljótt eins og rjúkandi rúst.  Þeir sem þetta hafa þolað, án þess að tekist hafi að grípa inn í og stöðva, leggja iðulega af stað út í lífið með skaddaða sjálfsvirðingu. Tilfinningar eins og reiði, vanmáttur og höfnun fylgir þessum einstaklingum stundum ævilangt og kvíði og þunglyndi eru ekki óalgengir fylgikvillar. Vandinn hverfur oftast nær ekki þótt komið sé á fullorðinsár. Börn sem hafa verið þolendur halda oft áfram að vera þolendur sem fullorðnir einstaklingar og sumir verða gerendur. Skýringar á þessu eru flóknar og margslungnar.

Þrátt fyrir að foreldrar og skólayfirvöld hafa tekið höndum saman og reynt ýmsar leiðir til að uppræta einelti skila aðgerðir ekki alltaf tilætluðum árangri. Stundum breytist eineltisatferli geranda og fylgismanna hans þannig að árásirnar verða leyndari þannig að erfiðara reynist að festa á þeim hönd og skilgreina. Í slíkum tilvikum getur einelti varað árum saman án þess að náist að uppræta það.

Því meira sem við ræðum þessi mál bæði í skólum, á heimilum og á vinnustöðum má leiða að því líkum að eineltisatvikum fækki. Gerandi eineltis, hvar sem hann er staddur þarf að skynja og skilja að atferli sem þetta líðst ekki. Það mun opinberast fyrr en síðar og vonandi verða á því  tekið með einum eða öðrum hætti. Mjög sennilega mun það aldrei gleymast og í huga þolandans mun það að öllum líkindum geymast.

 

Höldum saman gegn einelti

Höldum saman gegn  einelti