Eineltisteymi/nemendaverndarráð
Sumir skólar og samtök þar sem börn og unglingar koma saman hafa sett á laggirnar teymi sem fá til úrlausnar kvartanir um stríðni eða einelti. Eineltisteymi er hópur aðila sem fær fræðslu og þjálfun í að taka á eineltismálum með faglegum hætti. Styrkur teymisins er samanlögð reynsla og þekking sem teymið býr yfir. Þegar ígrunda þarf hvert skref er mikilvægt að geta rætt um það í litlum hópi. Aðilar bera saman bækur sínar, skiptast á skoðunum og taka sameiginlega ákvörðun um framhaldið. Samræða og samráð veitir teyminu styrk til að bæta verkferla og þróa vinnubrögð.
Af hverju teymi?
Af því að það getur verið erfitt fyrir einn aðila að bera ábyrgð á vinnslu eineltismáls
Teymið fær tækifæri til að sérhæfast
Þekking og reynsla varðveitist milli ára
Í sumum skólum er nemendaverndarráð og eineltisteymið það sama enda oft skipað sömu aðilum. Það er ekki alltaf nauðsynlegt að margir annist hina raunverulegu vinnslu. Í mörgum málum nægir að tveir aðilar haldi utan um málið og annist viðtöl. Nemendaverndarráð er bakland og veitir handleiðslu og ráðgjöf. Dæmi um hverjir sitja í eineltisteymi skóla:
Námsráðgjafi
Skólasálfræðingur
Deildarstjórar
Aðstoðarskólastjóri
